Um Halldór | Amma Fífí | Skop | Barnabækur | Myndskreytingar 1 | Myndskreytingar 2 | Barnabækur  2 | Neðanmáls |@

Halldór Baldursson

Um Halldor...
Halldór Baldursson er fæddur árið 1965 og hefur starfað sem teiknari frá árinu 1989. Síðan 2005 hefur hann aðallega teiknað pólitískar skopmyndir í dagblöð. Á ferlinum hefur Halldór mundað teiknipennann fyrir fjölbreytilegustu málefni, allt frá Námsgagnastofnun til auglýsingastofa og myndskreytt tugi bóka, sérstaklega barnabóka.

Hann hefur verið einn forvígismanna teiknimyndatímaritsins GISP! frá stofnun þess árið 1989 og kennt myndskreytingu í Listaháskóla Íslands frá árinu 1999. Halldór hefur teiknað í Viðskiptablaðið frá 1993 og í félagi við Þorstein Guðmundsson skapaði hann Ömmu Fífí sem birtist í DV milli 2000 og 2002. Halldór Baldursson teiknaði daglega skopmyndir í Blaðið/ 24stundir frá því í september 2005 þar blaðið var lagt niður í október 2008. Síðan þá hefur Halldór tekið við sem skopteiknari Morgunblaðsins.

Halldór hlaut hönnunarverðlaun og viðurkenningar FÍT í flokki myndskreytinga árin 2002, 2004, 2006 og 2008. Þá fékk hann bókaverðlaun barnanna 2005 fyrir Fíusól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Íslensku barnabókaverðlaunun 2006 fyrir Prinsessuna undurfögru og hugrakka prinsinn hennar eftir Margréti Tryggvadóttur. Hann var tilnefndur til blaðamannaverðlauna fyrir skopmyndir sína 2007 og heiðursverðlauna Myndstefs sama ár.

Halldór er giftur Sigríði Melrós Ólafsdóttur, myndlistarmanni og kennara, og á með henni þrjá stráka.

   

Barnabækur
Allir með Strætó
Guðbergur Bergsson 2000
Hundurinn sem þráði að verða frægur
Guðbergur Bergsson 2001
Sagan af húfunni fínu
Sjón 1993
Númi og höfuðin sjö
Sjón2000
Pétur og Krummi
Árni Árnason 1998
Sögurnar af Evu Klöru
Heiður Baldursdóttir 2003
Djúpríki
Bubbi Morthens, Robert Jackson 2004
Fíasól í fínum málum
Krisín Helga Gunnarsdóttir 2004
Dýr
Tove Appelgren 2005
Sagan af undurfögru prinsessunni og hugdjarfa prinsinum hennar
Margrét Tryggvadóttir 2006
Einu sinni átti ég gott
Vísnasafn 2006
Ballið á Bessastöðum
Gerður Kristný 2007
Drekinn sem varð bálreiður

Margrét Tryggvadóttir 2007
Fíasól er flottust

Kristín Helga Gunnarsdóttir 2008

 



    © Halldór Baldursson | Skipasundi 68 | 104 Reykjavík | Tel: 354 5813858 | Mobile: 354 6983548 | @