| 
Halldór Baldursson |
| Um Halldor...
Halldór Baldursson er fæddur árið 1965 og hefur starfað sem teiknari frá árinu 1989. Á ferlinum hefur Halldór mundað teiknipennann fyrir fjölbreytilegustu málefni, allt frá Námsgagnastofnun til auglýsingastofa og myndskreytt tugi bóka, sérstaklega barnabóka.
Hann hefur verið einn forvígismanna teiknimyndatímaritsins GISP! frá stofnun þess árið 1989 og kennt myndskreytingu í Listaháskóla Íslands frá árinu 1999. Halldór hefur teiknað í Viðskiptablaðið frá 1993 og í félagi við Þorstein Guðmundsson skapaði hann Ömmu Fífí sem birtist í DV milli 2000 og 2002. Halldór Baldursson hefur teiknað skopmyndir í Blaðið í frá því í september 2005.
Halldór hlaut hönnunarverðlaun FÍT í flokki myndskreytinga árin 2002, 2004 og 2006. Þá fékk hann bókaverðlaun barnanna 2005 fyrir Fíusól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Íslensku barnabókaverðlaunun 2006 fyrir Prinsessuna undurfögru og hugrakka prinsinn hennar eftir Margréti Tryggvadóttur
Halldór er giftur Sigríði Ólafsdóttur, myndlistarmanni og kennara, og á með henni þrjá stráka. |
| Barnabækur
Allir með Strætó
Guðbergur Bergsson 2000
Hundurinn sem þráði að verða
frægur
Guðbergur Bergsson 2001
Sagan af húfunni fínu
Sjón 1993
Númi og höfuðin sjö
Sjón2000
Pétur og Krummi
Árni Árnason 1998
Sögurnar af Evu Klöru
Heiður Baldursdóttir 2003
Djúpríki
Bubbi Morthens, Robert Jackson 2004
Fíasól í fínum málum
Krisín Helga Gunnarsdóttir 2004
Dýr
Tove Appelgren 2005
Sagan af undurfögru prinsessunni og hugdjarfa prinsinum hennar
Margrét Tryggvadóttir 2006
Einu sinni átti ég gott
Vísnasafn 2006
|
|